Götusópun í dag, 12. maí
Vegna bilunar í innra kerfi map.is í gær náðist því miður ekki að senda tilkynningu um götusópun fyrir daginn í dag.
Við minnum því á götusópun í dag á svæði 5 (sjá meðfylgjandi mynd), sem eru eftirfarandi götur:
Birkigrund, Birkivellir, Furugrund, Grenigrund, Hafnartún, Heiðarvegur, Hjarðarholt, Hlaðvellir, Hrísholt, Kirkjuvegur, Larensstræti, Lyngheiði, Mánavegur, Merkiland, Réttarholt, Seljavegur, Sigtún 5 - 36, Skólavellir, Sléttuvegur, Sólvellir, Stekkholt, Sunnuvegur, Tryggvagata 10 - 36, Tunguvegur, Vallholt og Víðivellir.
Gott að bílar séu færðir af götunum til að flýta fyrir hreinsun og gera hana skilvirkari. Kjörið er einnig að sópa gangstétt út á götuna fyrir framan húsið.