Gröfuþjónusta Steins ehf skrifaði undir samning við Selfossveitur bs vegna endurnýjunar á hitaveitustofnlögn Selfossveitna bs
Undirritaður var samningur þann 28. apríl 2026 milli Gröfuþjónustu Steins ehf og Selfossveitna bs vegna endurnýjunar á hitaveitustofnlögn Selfossveitna bs meðfram Eyrarbakkaveg.
Verkið felur í sér endurnýjun hluta stofnlagnar hitaveitu skammt ofan afleggjara að Kaldaðarnesi og suður fyrir þann afleggjara sem nemur 850 metrum í átt að Eyrarbakka. Ný DN300 lögn skal lögð samsíða núverandi lögn. Núverandi lögn skal fjarlægð að því marki sem aðstæður leyfa eftir að ný lögn hefur verið tekin í notkun. Auk þess skal leggja ídráttarrör fyrir fjarskiptalagnir.
Vinnusvæðið liggur milli Eyrarbakkavegar [34] og útivistar- og hjólastígs Sveitarfélagsins Árborgar. Verklok eru áætluð 30. október 2026.
Mannvirkja- og umhverfissvið

Mynd tekin við undirritun samnings 28.04.2026 frá vinstri talið: Haraldur Sigurðsson - verkefnastjóri framkvæmda- og tæknideild, Hákon Garðar Þorvaldsson - veitustjóri Selfossveitna, Steinn Þórarinsson - eigandi Gröfuþjónustu Steins ehf og Atli Marel Vokes - sviðsstjóri mannvirkja- og umhvefissviðs.

