Gulur, rauður, grænn og blár vinsælasta lag öskudagsbarna
Bókasafn Árborgar tekur ávallt á móti söngfuglum á öskudaginn og ákvað að gera óformlega könnun á því hvaða lag væri oftast tekið.
Á hverju ári er mikil stemning á bókasafninu Selfossi þegar öskudagskrakkarnir mæta til þess að syngja fyrir gotterí. Af forvitni tók starfsfólk upp á því athuga hvert af öskudagslögunum væri vinsælast og þó vissulega væru sum lög frumsamin og einhver sögðu brandara þá var það engin spurning og ekki þörf á endurtalningu því Litalagið var allra vinsælast. Merkilegast þótti bókavörðum að ekki mætti ein einasta Bjarnastaðabelja á svæðið í ár.

