Heimsókn belgískra leikskólanema í Goðheima
Í febrúar fengu börn og starfsfólk leikskólans Goðheima heimsókn frá belgískum leikskólakennaranemum sem stunda nám við Artevelde-háskólann í Gent. Nemarnir dvöldu eina viku í vettvangsnámi og tóku þátt í daglegu starfi leikskólans.
Lærdómur – Samanburður – Innblástur
Belgískir nemar hafa heimsótt leikskóla í Árborg síðan árið 2015. Liselot Simoen, leikskólastjóri Álfaborgar í Bláskógarbyggð og fyrrverandi nemandi við háskólann í Gent, hefur frá upphafi verið tengiliður samstarfsins og séð um skipulagningu heimsóknanna.
Að sögn nemanna er margt ólíkt með íslensku og belgísku menntakerfi. Má þar nefna sjálfstæði barnanna, sveigjanlegt dagskipulag og áherslu á lýðræði barna. Þeim þótti jákvætt hve mörg tækifæri börn fá til að taka þátt í daglegum verkefnum, sýna frumkvæði og hafa áhrif á eigið nám.
Útinám og áhættuleikur voru nemunum sérstaklega hugleikin. Þær lýsa reglulegum skógarferðum, klifri í trjám, eldamennsku úti og fjölbreytilegum verkefnum í náttúrunni sem óhefðbundnum þáttum miðað við belgíska leikskóla. Þessi nálgun hafi víkkað sýn þeirra á möguleika leiks og náms ungra barna. Þá þótti þeim einnig eftirtektarvert hvernig markvisst er unnið með tilfinningar og samskipti, meðal annars með núvitund og hugleiðslu.
Nemarnir segja að dvölin í Goðheimum hafi dýpkað skilning þeirra á þroska og námi ungra barna og orðið þeim lærdómsríkur spegill á eigið kerfi heima fyrir. Þær hyggjast nýta reynsluna til að efla fagmennsku, gagnrýna hugsun og innleiða nýjar hugmyndir í framtíðarstörfum sínum. Að sama skapi fá börn og starfsfólk í Goðheimum tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum og starfsháttum.
Starfsfólk Goðheima telur samstarfið bæði dýrmætt og lærdómsríkt, þar sem ólík kerfi og sjónarhorn verða að sameiginlegu lærdómssamfélagi fyrir börn og fullorðna.

