Heimsókn mennta- og barnamálaráðherra í Árborg
Fimmtudaginn 9. nóvember kom Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn í Árborg.
Fimmtudaginn 9. nóvember kom Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn í Árborg.
Ásmundur E. Daðason heimsótti Stekkjaskóla og kynnti sér þar húsnæði skólans og innra starf. Skólinn sem er yngsti skóli landsins, hóf starfsemi sína haustið 2021 en skólahúsnæði var tekið í notkun í mars á þessu ári.
Ásmundur ásamt starfsfólki í mennta- og barnamálaráðuneytinu fengu leiðsögn um húsnæði skólans frá skólastjórnendum og kynningu frá nemendum sem tóku vel á móti gestunum og kynntu m.a. fyrir þeim námsefni vetrarins.
Eftir vel heppnaða heimsókn í Stekkjaskóla fundaði Ásmundur Einar ásamt bæjarstjóra og stjórnendum á fjölskyldusviði
Á þeim fundi fékk Ásmundur Einar kynningu á þróunarverkefni á fjölskyldusviði um uppbyggingu á verkefni fyrir ungt fólk í Árborg. Mikil gróska er í faglegu starfi fyrir ungt fólk og var fundurinn árangursríkur.
Skólastjórnendur kynntu kennsluhætti Stekkjaskóla sem byggir á teymiskennslu og sögðu frá þróunarverkefninu Stekkur til framtíðar - að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla.