Hreystimánuður frístundaheimilanna
Í maí var unnið með síðasta þemamánuð skólaársins á frístundaheimilum Árborgar, en þemað að þessu sinni var Hreystimánuður.
Hreystimánuður var bæði skemmtilegur og fræðandi og hafa börnin sýnt hreysti og heilbrigðum lífsstíl mikinn áhuga.
Boðið var upp á fjölbreytt verkefni þar sem meðal annars var farið í ratleik í nærumhverfi frístundaheimilanna og börnin fengu að smakka alls kyns grænmeti og ávexti ásamt því að fræðast um vítamín og mikilvægi hollrar næringar.
Teknar voru fyrir umræður um tilfinningar, andlega líðan og mikilvægi þess að hugsa vel um sjálfan sig og aðra.
Hjóladagur vakti mikla lukku en þá komu börnin á hjólum í frístundina og nutu þess að hreyfa sig saman utandyra.
Kaffitími utandyra sló í gegn hjá börnunum og skapaði notalega stemningu í góða veðrinu. Þemamánuðir frístundaheimilanna hafa brotið upp starf barnanna í vetur með skemmtilegum hætti og verður spennandi að sjá hverju tekið verður upp á næsta skólaár.



