Innanbæjarstrætó í Árborg - bætt við ferð fyrir hádegi virka daga
Sveitarfélagið Árborg hefur í samstarfi við Strætó bætt við ferð á virkum dögum fyrir hádegi á leið 75 sem keyrir innan Árborgar. Þessi ferð fer frá Selfossi kl. 9:33 og keyrir milli Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka.
Þessi viðbót sem vonandi mun nýtast íbúum sveitarfélagsins vel er fyrsti hluti af breytingum á leið 75 en í haust mun tímataflan eftir hádegi aðlagast betur að frístundaakstri milli byggðarkjarnanna og um næstu áramót fjölgar akstursdögum þar sem t.d. verður reglulegur akstur á sunnudögum.
Viðbótarferðina má sjá hér á töflunni að neðan og inn á vef Strætó: https://www.straeto.is/is/timatoflur/2/39