Jólaljósin kveikt 2022
Kveikt verður á jólaljósum sveitarfélagsins fimmtudaginn 17. nóvember kl. 18:00
Hátíðardagskrá hefst á Brúartorginu í miðbæ Selfoss kl. 17:00 fimmtudaginn 17. nóvember. Kveikt verður á jólaljósunum í Sveitarfélaginu Árborg kl. 18:00
Þórir Geir og Alexander Freyr spila okkur inn í jólahátíðina. Barna- og unglingakór Selfosskirkju mætir og kemur okkur í jólaskapið.
Fjóla Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, heldur stutta tölu og telur með okkur niður í tendrun jólaljósanna 2022.
Einstaklingar og fyrirtæki eru hvött til að kveikja jólaljósin á fimmtudaginn til að lýsa upp skammdegið við upphaf Jóla í Árborg 2022.
Hlökkum til að sjá ykkur.