Jólasveinarnir koma á Selfoss
Laugardaginn 13. desember klukkan 16:00 munu jólasveinarnir úr
Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og
nærsveitunga á Brúartorginu í miðbæ Selfoss.
Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og setji upp jólasveinahúfurnar í tilefni dagsins.
Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og undanfarin ár og verða þeim innan handar með að taka niður pantanir á jólaböll eða vinnustaðaheimsóknir. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 482-4822 eða á netfangið umfs@umfs.is
Ungmennafélag Selfoss

