Kennsla unglinga í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri
Ákveðið hefur verið að kennsla á unglingastigi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri hefjist mánudaginn 24. janúar n.k.
Kennslan fer fram í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka og í Rauða húsinu á Eyrarbakka.
Aðstæður sem þar eru fyrir hendi gera kennurum og starfsfólki skólans kleift að halda úti kennslu og þeirri starfsemi sem skipulögð hefur verið í skólanum.
Sjá nánar frétt á barnaskolinn.is