Kosning íþróttakonu og -karls 2022
Frístunda- og menningarnefnd stendur fyrir kjöri á íþróttakonu og -karli Árborgar hvert ár. Í ár eru 8 konur og 14 karlar tilnefnd til að hljóta titilinn. Sjá nánar hvaða tilnefningar bárust.
- Síðustu ár höfum við stuðst við netkosningu sem reynst hefur vel. Þessi nýjung gefur öllum áhugasömum tækifæri til að taka þátt og hafa áhrif á hverjir eru valdir íþróttakona og -karl Árborgar 2022.
Netkosningin er opin út þriðjudaginn 20. desember nk. og munu úrslit hennar gilda 20% á móti atkvæðum valnefndarinnar þannig að sá/sú sem endar með flest atkvæði í hvorum flokki fær 18 stig, næst flest atkvæði gefa 15 stig, þriðja sætið gefur 12 stig, fjórða sætið gefur 9 stig og fimmta sæti 6 stig.