Leikskólinn Jötunheimar hlýtur styrk frá Sprotasjóði leik- grunn- og framhaldsskóla fyrir „Mál skiptir máli“
Verkefnið miðar að því að efla málþroska leikskólabarna með markvissri málörvun bæði innan leikskólans og á heimilum þeirra.
Lögð er áhersla á að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu með fræðslu og notendavænum verkfærum sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi með börnum. Með fræðsluerindum, aðgengilegu málörvunarefni og auknu samstarfi leikskóla og heimila er stuðlað að samfelldri málörvun, auknu sjálfstrausti foreldra og jöfnum tækifærum barna til málþroska.
Starfsfólk leikskólans er ótrúlega stolt og ánægt með að hafa fengið þennan styrk og hlakkar til komandi þróunarverkefnis.
Við óskum Jötunheimum innilega til hamingju með styrkinn og metnaðarfullt skólastarf sem tekið er eftir.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt styrkþegum og Braga Þór Svavarssyni stjórnarformanni Sprotasjóðs, í Safnahúsinu.
Myndir teknar af vefsíðu og facebook síðu Stjórnarráðs Íslands.

