Litrík, skemmtileg og fróðleg Hinsegin vika, eitthvað fyrir öll!
Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í fimmta sinn, dagana 2. – 7. mars næstkomandi.
Markmið Hinsegin viku Árborgar er að efla fræðslu um hinsegin málefni og stuðla að auknum skilningi í samfélaginu. Jafnframt er lögð áhersla á að auka sýnileika hinsegin fólks og vekja athygli á mikilvægi öryggis, jafnréttis og virðingar. Með vikunni viljum við einnig styrkja jákvæða og uppbyggilega umræðu þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast og skapa rými fyrir þátttöku allra, óháð kyni, kynhneigð, kynvitund eða bakgrunni. Með því að draga þessi málefni fram í dagsljósið er leitast við að byggja samfélag þar sem fjölbreytileikinn er viðurkenndur og honum fagnað.
Dagskrá vikunnar er fjölbreytt og höfðar til ólíkra aldurshópa. Má þar helst nefna:
- Setning Hinsegin viku Árborgar í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands mánudaginn 2. mars kl. 19:30. Bragi bæjarstjóri setur vikuna og Sindri Sparkle verður með uppistand og fræðslu um hinsegin fánana.
- Frelsi - myndlistasýning ungmenna frá hinsegin Zelsíuz opnar þriðjudaginn 3. mars. Sýningin verður í stigagangi Ráðhúsins og verður til sýnis út alla vikuna.
- Regnbogadagur 4. mars við hvetjum öll sem og allar stofnanir til að fagna fjölbreytileikanum og klæðast fötum í öllum regnbogans litum.
- Dragdrottningarnar CrisArtista, Miss Agatha P. og Miss Whoop Whoop munu skemmta á sviðinu á Selfossi 6. mars kl. 21:00.
- Fjölskyldusamvera fyrir alla aldurshópa þar sem ýmislegt föndur verður í boði á Bókasafni Árborgar, Selfossi laugardaginn 7. mars milli kl. 11:00-13:00.
- GK bakarí mun bjóða upp á skrautlegt bakkelsi alla vikuna.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á vefsíðu sveitarfélagsins.
Undirbúningshópur Hinsegin viku Árborgar hvetur fyrirtæki, stofnanir og íbúa sveitarfélagsins til að taka virkan þátt og hjálpa til við að gera vikuna litríka og gleðilega.
Það eru fjölmargar leiðir til þess að taka þátt, hvort sem það er með því að flagga hinsegin fánum, skreyta vinnustaði og heimili, standa fyrir viðburði eða einfaldlega sýna stuðning í verki. Með því að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn getum við saman skapað hlýlegt og opið samfélag þar sem öll fá að njóta sín.
Inni á vefsíðu Árborgar má finna lista yfir hugmyndir og gagnlega hlekki um leiðir til að taka þátt í vikunni.
Tökum höndum saman og gerum Hinsegin viku Árborgar að eftirminnilegri hátíð þar sem fjölbreytileikinn fær að skína.
F.h. undirbúningshóps Hinsegin viku Árborgar

