Magnús J. Magnússon er handhafi menningarviðurkenningar Árborgar 2026
Menningarviðurkenning Árborgar 2026 var veitt við fjölmenna og fjöruga athöfn í Grænumörk í dag, 29. október.
Athöfnin hófst með því að Hörpukórinn söng undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. 
Þar á eftir afhenti Kjartan Björnsson Magnúsi viðurkenningargripinn og hafði m.a. um hann þessi orð:
„Handhafi menningarviðurkenningar Árborgar 2026 er vel þekktur hér í sveitarfélaginu enda hefur viðkomandi verið atkvæðamikill í margvíslegu menningarstarfi, ekki síst leiklist.
Magnús setti upp sitt fyrsta leikrit með skátafélaginu sínu í Akureyrarkirkju, þá 11 ára gamall, síðan hefur hann frumsýnt 125 leiksýningar og af þeim samið 50 – 60 sjálfur. Það er óhætt að segja að menningin bókstaflega spretti upp í kringum hann, hvar sem hann drepur niður fæti og í marga áratugi hefur hann verið órjúfanlegur hluti af menningarlífi Árborgar.“

Það var einróma ákvörðun Menningarnefndar Árborgar að veita Magnúsi þessa viðurkenningu í ár og þakka honum um leið fyrir hans ómetanlega menningarstarf í þágu samfélagsins.
Verðlaunagripurinn var handtálgaður Jaðrakan eftir myndlistarmanninn Hafþór Ragnar Þórhallsson.


