Maurar í Goðheimum
Vikuna 9. - 13. mars fékk leikskólinn Goðheimar á Selfossi nokkuð óvenjulega gesti í heimsókn á leikskólann, en það voru lifandi maurar sem skemmtu bæði nemendum og starfsfólki.
Heimsóknin er hluti af verkefninu „Ants in action“ sem var hannað til þess að opna augu barna fyrir hinum heillandi leyndardómum mauraheimsins.
Það var dásamlegt að sjá af hversu mikilli virðingu og einbeitingu börnin nálguðust þessar smáu verur. Þau fylgdust náið með skipulagi maurabúsins og sýndu ríka samkennd og gætni í garð gestanna sinna.


Marco Mancini og teymið, sem ber ábyrgð á heimsókn mauranna, hefur nýlega gefið út vandaða, tvítyngda vísindabók fyrir börn á íslensku og ensku sem heitir „Matti og Maurún: Hulinn heimur íslenskra maura“. Bókin er skrifuð til að styðja við þessa upplifun og dýpka skilning barnanna á náttúrunni.
Foreldrafélag Goðheima keypti 2 bækur fyrir leikskólann. Skemmtileg og fróðleg vika að baki hjá öllum á Goðheimum.
Ljósmyndir: Aðsendar

