Menningarmánuðurinn október 2022
Menningarmánuðurinn október í ár var sá stærsti frá upphafi með fjöldan allan af viðburðum fyrir alla aldurshópa.
Nú er lokið einum af stærstu viðburðum sveitarfélagsins, Menningarmánuðinum október. Menningarmánuðurinn var í ár haldinn í þrettánda sinn hérna í Sveitarfélaginu Árborg og hafa viðburðirnir aldrei verið jafn margir og fjölbreyttir eins og í ár.
Sem fyrr kynnti sveitarfélagið viðburðadagskrá sem höfðaði til allra aldurshópa víðsvegar um sveitarfélagið og með aðstoð einstaklinga og félagasamtaka tókst okkur að bjóða uppá þétta og fjölbreytta dagskrá. Þar má til að mynda nefna fimmtudagsskemmtanir og fróðleik á bókasafni Árborgar, listasmiðjur, opin hús og kynningar, söng og dans, Sunnudagsrúntinn, Myrkradaga, fjögur sagnakvöld, tónlist við sundlaugarbakkann, kynning á listaskólum Árborgar og margt fleira.
Einn af stóru viðburðum mánaðarins var Menningargangan, þar sem um 40 listamenn í Árborg kynntu sig og verk sín á 22 stöðum víðsvegar um sveitarfélagið. Það var greinilegt að þessari Menningargöngu var vel tekið af öllum og verður hún nú fastur liður í Menningarmánuðinum október, þar sem listamenn bjóða heim annan laugardag í október.
Við þökkum öllum þeim er tóku þátt í Menningarmánuðinum í ár og minnum á að menning borgar sig fyrir alla!
Hjartans bestu kveðjur
Menningar- og upplýsingadeild Árborgar