Menningarmánuðurinn | Ratleikur Fossbúa
Í tilefni af Menningarmánuðinum október í Árborg gefa Fossbúar út þrjá ratleiki fyrir alla fjölskylduna, "Almenn þekking", "Fyrir börnin" og "Skoðum Árborg".
Leikirnir opna fimmtudaginn 15. október kl. 10:00 og verða opnir til sunnudagsins 25. október.
Dregnir verða út flottir vinningar í boði Árborgar, einn úr hverjum ratleik.
Allir þátttakendur sem senda inn niðurstöður og skrá netfangið sitt eru með í pottinum.
Dregið verður mánudaginn 26. október 2020.
Sjá nánar um Ratleik Fossbúa á viðburðadagatali sveitarfélagsins