Miklar skemmdir á Stokkseyri
Í ljós hefur komið að sundlaugakarið í sundlaug Stokkseyrar er mjög illa farið eftir 31 ára notkun.
Ljóst er að það þarf að fara í umfangsmeiri viðgerðir á kari sundlaugarinnar á Stokkseyri, þar sem skipta þarf um allar hliðar á lauginni ásamt botni og dúk.
Einnig verður farið í að mála potta og hugað verður að viðhaldi á öðrum þáttum á lóð og húsi sundlaugarinnar.
Framkvæmdir eru hafnar en vegna umfangs skemmda er óljóst hvenær framkvæmdum líkur.