Myndlistarfélag Árnessýslu fagnar 45 ára afmæli með 45 viðburðum í mars!
Myndlistarfélag Árnessýslu fagnar 45 ára afmæli í mars og framundan er sannkallaður menningarmánuður á Suðurlandi. Alls verða 45 viðburðir haldnir í tilefni afmælisins og það besta er að opið er fyrir almenning á flest öllum viðburðum mánaðarins.
Félagið var stofnað í mars árið 1981 af hópi áhugasamra listamanna sem vildu skapa vettvang fyrir myndlist og skapandi starf. Frá þeim tíma hefur félagið vaxið og dafnað og í dag er það öflugt samfélag listafólks með yfir 100 félagsmenn sem vinna í fjölbreyttum miðlum og stílum.
Til að halda upp á þennan áfanga ætlum við að gera vel við okkur með því að fylla marsmánuð af list. Á dagskránni eru fjölmargar sýningar, opnar vinnustofur, listaviðburðir, námskeið, kaffihittingar og fjölskylduvænir viðburðir. Viðburðirnir fara fram á ýmsum stöðum um Suðurland og gefa fólki tækifæri til að upplifa listina á fjölbreyttan hátt.
Markmiðið er einfalt:
Að fagna listinni, félaginu okkar og samfélaginu og bjóða sem flestum að taka þátt.
Við hvetjum alla til að kíkja á viðburði, skoða sýningar og njóta skapandi stemningar með Myndlistarfélaginu í mars. Flestir viðburðir eru ókeypis og opnir öllum, nema annað sé sérstaklega tekið fram (t.d. viðburðir eins og Málum & Skálum).
Fylgist með dagskránni á heimasíðu félagsins þar sem við kynnum alla 45 viðburðina sem fara fram í afmælismánuðinum. Einnig má finna upplýsingar á viðburðadagatali sveitarfélagsins.


