Ný dælustöð Selfossveitna
Þann 6. maí síðastliðinn var tekin í gagnið ný dælustöð Selfossveitna við Austurveg 67. Um er að ræða aðaldælustöð hitaveitunnar fyrir Sveitarfélagið Árborg, en nýja stöðin eykur verulega afhendingaröryggi á heitu vatni til íbúa og fyrirtækja í sveitarfélaginu.
Til samanburðar þá gat gamla stöðin dælt um 240 l/s við hámarksálag en sú nýja getur afkastað þrefalt á við hana eða 750 l/s. Nýja stöðin er því mikið framfaraskref fyrir sveitarfélagið og getur vel tekið á þeirri fjölgun sem nú sér stað en áætla má að stöðin geti sinnt samfélagi sem telur um og yfir 30000 íbúa. Það má því óska íbúum hjartanlega til hamingju með stöðina.