Ný hreinsistöð við Geitanes
Tímamóta skóflustunga hefur verið tekin vegna framkvæmda við nýja hreinsistöð við Geitanes á Selfossi.
Framkvæmdir við stöðina munu hefjast í byrjun september 2022 og mun verktakafyrirtækið Þjótandi ehf. hefja þar vinnu við lagningu útrásar- og yfirfallslagna sem og að grafa fyrir byggingu á hreinsistöðinni sjálfri.
Vonast er til að hægt verði að bjóða út framkvæmdir við byggingu stöðvarinnar í lok árs 2022.