Ný og glæsileg gróðurbeð
Nú má víða sjá í sveitarfélaginu unga fólkið okkar að störfum við t.d. gróðursetningu og snyrtingar.
Ný og glæsileg gróðurbeð lita dagsins ljós. Eins og forsíðumyndin sýnir er verið að gróðursetja í nýtt stórglæsilegt beð við innkomuna á Selfoss. Blómin munu sýna merki sveitarfélagsins og verður spennandi að sjá útkomuna.