Ný verk prýða Sundhöll Selfoss
Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður hefur sett upp sýningu á einu af stóru verkum sínum í Sundhöll Selfoss.
Aðspurð segir hún að verkið hafi þróast út frá upplifun sinni af sundi og köfun og hinni eilífu leit að svörum í djúpinu. Hugmyndin snýst um það hvað allt er í raun líkt, lífverurnar, gróðurinn, vatn, eldur og jörð.
Fyrir Guðrúnu er sund mjög mikilvæg dagleg iðkun og henni fannst að verkið yrði hreinlega að fá að koma í sundlaugina þar sem hugmyndin varð til.
Nánar um verk Guðrúnar og feril á tryggvadottir.com.