Nýr samningur undirritaður við Sigurhæðir
Sigurhæðir miðstöð fyrir þolendur kynbundis ofbeldis á Suðurlandi fagnaði tveggja ára afmæli þann 19. mars.
Sigurhæðir bjóða konum 18 ára og eldri endurgjaldlausa samhæfða ráðgjöf, stuðning og meðferð á þeirra forsendum.
Verkefnið er fjármagnað með styrkjum frá ríkinu, sveitarfélögum, frjálsum félagasamtökum og einstaklingum.
Í tilefni afmælishátíðar Sigurhæða var skrifað undir þriggja ára samstarfsamning við Sveitarfélagið Árborg en með því leggur sveitarfélagið sitt að mörkum að tryggja áframhaldandi uppbyggingu úrræðisins á Suðurlandi.