Nýr þjónustusamningur við Körfuknattleiksfélag Selfoss
Nýverið var undirritaður nýr þjónustusamningur milli Sveitarfélagsins Árborg og Körfuknattleiksfélag Selfoss sem gildir til næstu fimm ára.
Samningurinn gildir til næstu fimm ára eða til ársins 2030. Það er mikilvægt að fyrirsjáanleiki sé í greiðslum fyrir sveitarfélagið og félagasamtök og því ánægjulegt að samið sé til lengri tíma.
Helstu markmið samningsins eru að körfuknattleiksfélagið geti áfram staðið fyrir öflugu starfi í körfuknattleik fyrir yngri og eldri iðkendur. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og tekur samningurinn mið af því að félagið geti áfram vaxið og eflt félagsauð sinn.
Félagið starfrækir áfram akademíu við FSU sem styður vel við afreksstarf félagsins og hefur reynst vel í að halda iðkendum lengur í starfinu.
“Það er mikilvægt hverju samfélagi að hafa öflug íþrótta- og frístundafélög. Hér í Árborg erum við rík af félagsauð sem endurspeglast í fjölda félaga og öflugu starfi sem mikilvægt er að styðja með fjölbreyttum hætti. Stoltur af því að undirrita þennan samning fyrir hönd sveitarfélagsins,” sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.

