Nýtt merki Byggðasafns Árnesinga
Tekið hefur verið í notkun nýtt einkennismerki fyrir Byggðasafn Árnesinga.
Sylvía Kristjánsdóttir grafískur hönnuður á Eyrarbakka hefur hannað nýja merkið. Nýja merkið táknar bátinn Farsæl, sem er stærsti og merkasti safngripur Sjóminjasafnsins og glugga safnahúsanna.
Brátt má sjá þetta nýja merki á öllum safnahúsum, öllu bréfsefni, heimasíðu og á auglýsingum og merkingum safnahúsa.