Nýtt skólaþróunarteymi
Sérfræðingar í nýtt skólaþróunarteymi mennta- og menningarmálaráðuneytis - Störf án staðsetningar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir tveimur sérfræðingum til starfa í nýju skólaþróunarteymi sem starfar þvert á fagskrifstofur menntamála og er einkum ætlað að fylgja eftir áherslum í nýrri menntastefnu til ársins 2030. Teymið mun heyra undir skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála og er ætlað að starfa í fimm ár hið minnsta.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling sem er nákvæmur í vinnubrögðum, býr yfir verulegri hæfni í mannlegum samskiptum og góðri skipulagshæfni. Leitað er eftir áhugasömum og jákvæðum einstaklingum sem eru skipulagðir í vinnubrögðum, búa yfir ríkri samskiptahæfni, sýna frumkvæði og geta starfað sjálfstætt og í teymum. Í starfinu munu felast einhver ferðalög um landið.
Helstu verkefni eru:
• Samræming stuðnings og eftirfylgni með innleiðingu aðalnámskráa.
• Efling starfsþróunar kennara og skólastjórnenda á öllum skólastigum.
• Þróun innra og ytra mats, ráðgjöf og eftirfylgni.
• Stuðningur og samráð við fagráð námssviða og kennararáð.
• Greining á mikilvægum rannsóknaráherslum.
• Gerð fræðsluefnis í samræmi við menntastefnu.
• Ritstýring þemahefta sem styðja við innleiðingu aðalnámskrár og menntastefnu.
• Skipulag menntaþings og annara viðburða í tengslum við menntastefnu.
• Vinna að mótun aðgerða við þróun námsgagna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldspróf er kostur.
• Þekking og reynsla á einhverjum eftirtalinna sviða: náms- og gæðamat, starfsþróun kennara,
aðalnámskrár, kennslufræði og námsgögn.
• Þekking og reynsla af rannsóknum og greiningu á málefnum er falla undir málefnasvið
fagskrifstofa menntamála.
• Þekking og reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna er
einnig nauðsynleg.
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Góð færni í framsetningu og upplýsingamiðlun talaðs og ritaðs máls .
• Góð kunnátta í ensku og Norðurlandamáli.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.