Öflug tengiráðgjöf styrkir virkni og félagsleg tengsl eldra fólks
Bylgja Sigmarsdóttir hefur frá 1. maí 2024 starfað sem tengiráðgjafi hjá Sveitarfélaginu Árborg. Hún hefur markvisst unnið að því að efla félagsleg tengsl, auka virkni og styðja eldra fólk til þátttöku í samfélaginu. Verkefnið varð til í kjölfar styrkveitingar frá þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og hefur frá upphafi sýnt skýran árangur.
Á þessum tíma hafa 66 einstaklingar á aldrinum 45–90 ára fengið tengiráðgjöf. Þjónustan felst meðal annars í því að fylgja fólki í ný úrræði í fyrsta skipti, veita upplýsingar um stuðning og þjónustu, styrkja tengsl við nærumhverfi og styðja við aukna virkni. Meira en helmingur þeirra sem notið hafa þjónustunnar hefur aukið félagslega þátttöku sína og tengsl við samfélagið. Í sumum tilvikum er um viðkvæm og flókin mál að ræða sem krefjast lengri og markvissrar eftirfylgni, auk stuðnings við aðstandendur.
Tengiráðgjöf er unnin í nánu samstarfi við félagslega stuðningsþjónustu sem sinnir um 100 innlitum daglega á heimilum íbúa. Áhersla hefur verið lögð á að draga úr félagslegri einangrun, sem er einn stærsti áhættuþáttur hnignunar og skertrar lífsgæða. Tengiráðgjafi hefur jafnframt gegnt mikilvægu brúarhlutverki milli einstaklinga og samfélagslegra úrræða, meðal annars í samstarfi við Rauði krossinn á Íslandi, félög eldri borgara og aðra þjónustuaðila í Árborg.
Auk einstaklingsráðgjafar hefur tengiráðgjafi staðið að fræðslu og forvörnum, tekið þátt í þróunarverkefnum tengdum heilbrigðri öldrun og stutt við hópamyndun, svo sem danshóp 60+ og verkefnið „Karlar í uppsölum“. Með því er ekki aðeins unnið gegn einangrun heldur einnig skapað rými fyrir ný tengsl, aukið sjálfstraust og meiri lífsgleði.

Þrátt fyrir góðan árangur hefur ráðuneytið ákveðið að framlengja ekki styrk til stöðugildisins. Velferðarþjónusta Árborgar hefur sent ráðherra áskorun um að endurskoða þá ákvörðun. Með breytingum á starfsskipulagi hefur þó tekist að tryggja áframhaldandi tengiráðgjöf, að hluta til, út árið 2026.


