Ofurhetjuklúbbur á Bifröst frístundaheimili
Börn í Bifröst teiknuðu alls konar ofurhetjumyndir og nýttu sér gervigreind (ChatGPT) til þess að gera myndirnar þeirra raunverulegri.
Krökkunum finnst gífurlega spennandi að geta tekið þátt í ofurhetjuklúbbi á frístundaheimilinu sínu og geta ekki beðið eftir að endurtaka leikinn.
Verkefnið byrjaði út frá samræðum starfsmanna við börnin þar sem þau voru spurð; „Ef þú værir með ofurkraft, hvernig ofurkraft myndirðu þá hafa?“ Alls konar skemmtilegar samræður spruttu út frá því og börnin teiknuðu margs konar myndir. Öllum börnunum í 1. - 4. bekk fannst þetta spennandi viðfangsefni.
Börn leyfðu hugmyndafluginu að stjórna för og teikna alls kyns persónur sem þau vildu sjá „lifna við“.
Næsti klúbbur verður fyrir sumarfrí og þá ætlar Bifröst að taka þetta skrefinu lengra og bæta við sögum út frá myndunum. Gaman að heyra af ofurhetjuáhuga barnanna og því hvað starfsfólk er duglegt að skapa þeim verkefni byggðum á áhugasviði barnanna sjálfra.

