Óskað er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi
10. september 2019
Hér með er óskað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi.
Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) mun veita formlega á ársfundi sínum í október 2019. Hvatningarverðlaunin í ár eru þau fyrstu sem veitt verða á sviði menningar fyrir landshlutann Suðurland.
Tilnefningar skulu hafa borist á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en 30. sept. 2019.
Einnig má senda tilnefningar til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi.
Markmið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undarnfarin ár sem vert er að fagna og verðlauna gott starf.
Verðlaunin má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun, söfnum, sýningum, hópi og/ eða verkefni. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning á sviði menningar en menning er víða hornsteinn hvers samfélags og skiptir íbúa og gesti á Suðurlandi miklu máli.
Í tilnefningunni skal hafa eitthvað af eftirfarandi til hliðsjónar:
- Hefur tilnefndi gefið jákvæða mynd af Suðurlandi og/eða ákveðnu svæði á Suðurlandi?
- Hefur tilnefndi stuðlað að þátttöku íbúa og/eða gesta á menningarviðburðum á Suðurlandi?
- Hefur tilnefndi vakið sérstaka athygli á menningarafri Sunnlendinga?
- Hefur tilnefndi aukið samstöðu og virkni í tengslum við menningu meðal íbúa?
- Hefur tilnefndi skapað nýtt menningartengd verkefni sem vakið hefur eftirtekt?
- Hefur tilnefndi stuðlað að aukinni menningu með einhverjum hætti hjá börnum og ungmönnum.
Veitt verður viðurkenninga og peningarverðlaun sem nýtt verði í áframhaldandi menningarstarfi á Suðurlandi.
Sjá auglýsingu