Ráðning leikskólastjóra Brimvers/Æskukots
Birna Guðrún Jónsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Brimvers/Æskukots frá og með 1. janúar 2021.
Birna Guðrún er með B.Ed. próf í leikskólakennarafræðum og 60 eininga viðbótarnám í menntastjórnun og matsfræði. Birna Guðrún er með tvö leyfisbréf sem leikskólakennari og grunnskólakennari. Hún hefur verið aðstoðarleikskólastjóri Jötunheima og frá 1. október 2019 hefur hún starfað þar sem leikskólastjóri í leyfi Júlíönu Tyrfingsdóttur. Birna Guðrún hefur einnig starfað sem leikskólakennari og deildarstjóri í fleiri leikskólum Árborgar og í Kerhólsskóla. Á árunum 2014-2016 sinnti hún m.a. stjórnunarstörfum í leikskóla Vesturbyggðar. Þá hefur Birna Guðrún sótt fjölda námskeiða, m.a. ART réttindanámskeið, Hljóm 2, TRAS, Tákn með tali sem og leiðtoganám og mannauðsstjórnun við Háskólann á Bifröst.