Ráðning skipulagsfulltrúa hjá Árborg
Rúnar Guðmundsson hefur verið ráðinn deildarstjóri skipulagsdeildar hjá Sveitarfélaginu Árborg.
Rúnar Guðmundsson er byggingarfræðingur að mennt og hefur starfað við skipulagsmál frá árinu 2003 en þá starfaði hann sem forstöðumaður umhverfssviðs Rangárþings eystra allt til ársins 2007.
Á árunum 2007 til 2012 starfaði Rúnar sem skipulagsfulltrúi- og byggingarfulltrúi hjá byggðasamlagi Rangárþings (Ásahrepppur, Rangárþing Eystra, og Rangárþing Ytra) og síðar í byggðasamlagi uppsveita Árnessýslu sem byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi, þá skipulagsfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði og Sveitarfélaginu Árborg.
Starfið var auglýst laust til umsóknar í október sl.
Við bjóðum Rúnari innilega velkomin til starfa.