Rennibraut Sundhallar Selfoss opnar aftur
Rennibrautin í Sundhöll Selfoss opnar laugardaginn 29. júní eftir endurbætur.
Rennibrautin opnar eftir umfangsmiklar endurbætur
Síðasta haust kom í ljós að það þurfti að fara í töluverðar endurbætur á rennibrautinni í Sundhöllinni, skipta þurfti um fimm efstu rennibrautarpartana og að auki var skipt um öll þrep í stiganum, mála þurfti gamla hluta rennibrautar og vanda til verks til að auka endingu og svo að hægt sé að renna hraðar.
Innilaugin aftur opin
Einnig opnar innilaugin aftur eftir viðhald, loftaplötur losnuðu og þurfti að tæma laugina til að festa þær aftur og var tíminn nýttur til fyrirbyggjandi aðgerða vegna brotinna flísa í lauginni.
Hlökkum til að sjá sem flest í sundi um helgina til að fagna opnun rennibrautar og njóta sumarblíðunnar, spáin er góð!