Samningur um byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit – Jötunheimar viðbygging
Í gær mánudaginn 2. febrúar kl. 11:30 var samningur undirritaður milli Fasteignafélags Árborgar slf og Norconsult ehf, um byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit vegna framkvæmda við viðbyggingu leikskólans Jötunheima að Norðurhólum 3 á Selfossi.
Atli Marel Vokes sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs skrifaði undir samninginn fyrir hönd Fasteignafélags Árborgar slf og Þorgeir Hólm Ólafsson framkvæmdastjóri fyrir hönd Norconsult ehf. Norconsult ehf var lægstbjóðandi eftir almennt opið útboð.
Vinna við jarðvinnu vegna framkvæmdanna er í fullum gangi og eru verklok áætluð 1. mars nk.
Útboð er í gangi fyrir byggingu leikskólans og verða tilboð opnuð 16. febrúar nk., stefnt er að því að ljúka framkvæmdum við byggingu leikskólans og fullnaðarfrágangi lóðar haustið 2027.
Viðhengi 1: Minnisblað um niðurstöðu útboðs.

Ljósmynd tekin við undirritun samnings
Fremri röð frá vinstri: Atli Marel Vokes Árborg, Þorgeir Hólm Ólafsson Norconsult.
Aftari röð frá vinstri: Sigurður Ólafsson Árborg, Kristján Rafn Harðarson Norconsult, Salóme Grímsdóttir Norconsult.


