Samstaða og gleði einkenndi Hinsegin viku Árborgar
Hinsegin vika Árborgar fór fram dagana 2. – 7. mars og tókst einstaklega vel. Þetta var í fimmta sinn sem vikan er haldin í sveitarfélaginu og var þátttakan bæði mikil og ánægjuleg. Fjölmargir íbúar, fyrirtæki, stofnanir og skólar tóku þátt með einum eða öðrum hætti og lögðu sitt af mörkum til að skapa jákvæða og litríka stemningu í samfélaginu.
Markmið Hinsegin viku Árborgar er að efla fræðslu um hinsegin málefni, auka sýnileika og stuðla að auknum skilningi, öryggi, jafnrétti og virðingu í samfélaginu. Með vikunni er leitast við að skapa rými fyrir uppbyggilega umræðu og þátttöku allra, óháð kyni, kynhneigð, kynvitund eða bakgrunni og byggja þannig samfélag þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín.
Dagskrá vikunnar var fjölbreytt og vel sótt. Vikan hófst með setningarathöfn og fræðsluviðburðum sem vöktu góð viðbrögð. Á miðvikudegi var haldinn regnbogadagur þar sem fólk var hvatt til að klæðast litum regnbogans og víða mátti sjá litríkan klæðaburð í skólum á vinnustöðum og víðar um sveitarfélagið.
Skólasamfélagið tók virkan þátt í vikunni. Nemendur og starfsfólk í framhaldsskólanum, grunnskólum, leikskólum og frístundaheimilum Árborgar tóku þátt með fjölbreyttum hætti, meðal annars með fræðslu, umræðum og skapandi verkefnum. Víða var föndrað og unnið með regnbogalitina og fjölbreytileikann sem skapaði litríka og gleðilega stemningu í skólunum og frístundaheimilunum.
Allir nemendur í 1. bekk í grunnskólum Árborgar fengu einnig bókina Úlfur og Ylfa – Ævintýradagurinn að gjöf, sem er falleg barnabók sem fjallar um vináttu og fagnar fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð.
Haldið var skemmtilegt hinsegin pub quiz í miðbænum þar sem gestir gátu spreytt sig á spurningum í góðum félagsskap. Síðar í vikunni fór fram glæsilegt Drag Show í miðbænum sem var afar vel sótt og vakti mikla lukku meðal gesta. Stemningin var frábær og sýningin vakti bæði gleði og aðdáun hjá þeim sem mættu.
Á sama tíma tóku margir aðilar í nærsamfélaginu þátt. Víða mátti sjá regnbogafána blakta, glugga og vinnustaði skreytta í regnbogalitum, framtak sem vakti bæði athygli og gleði. Slík þátttaka sýnir vel þann stuðning og samstöðu sem ríkir í samfélaginu.
Hinsegin vikunni lauk svo með skemmtilegum og fjölskylduvænum viðburði á bókasafninu þar sem fjölskyldur komu saman í regnbogaföndri. Þar mátti sjá börn og fullorðna njóta skapandi samveru og gleðinnar sem fylgir því að gera eitthvað saman.
Gestir á Regnbogaföndri Bókasafns Árborgar.
Undirbúningshópur Hinsegin viku Árborgar vill færa öllum sem tóku þátt, lögðu sitt af mörkum eða mættu á viðburði vikunnar innilegar þakkir. Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt og sýndu samstöðu.
Hinsegin vika Árborgar er mikilvægur viðburður í samfélaginu og undirbúningshópurinn hlakkar til að halda áfram að þróa og efla vikuna á komandi árum.
F.h. undirbúningshóps Hinsegin viku Árborgar
Forsíðumynd er af uppistands- og fræðsluviðburði með Sindra Sparkle í FSU.





