Selfosshöllin vígð með pompi og prakt
Selfosshöllin, nýtt fjölnota íþróttahús sveitarfélagsins, fékk loks formlega vígslu mánudaginn 9. maí 2022.
Covid-19 hefur sannarlega markað uppbyggingartíma hallarinnar og kom meðal annars í veg fyrir að hægt væri að halda opnunarhátíð þegar húsið var formlega tekið í notkun síðasta haust.
Frá því í byrjun október í fyrra hefur þetta glæsilega hús verið í mikilli notkun.
Auk hefðbundins íþróttastarfs hafa eldri borgarar frá fyrsta degi nýtt húsið til gönguferða og þar hittast nú um 120 manns daglega í þeim tilgangi. Dagforeldrar eiga þarna athvarf með börnin og hafa leikskólar jafnframt nýtt aðstöðuna. Fluguveiðimenn hafa fengið tíma í húsinu til að æfa sín köst og svo má lengi telja.
Það er heldur engin spurning að sveitarfélag sem telur yfir 10.000 íbúa þarf á slíku húsi að halda.
Í dag er flestum orðið ljóst hversu mikla þýðingu góð íþróttaaðstaða og góðar fyrirmyndir hafa fyrir börnin okkar. Það er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn og í dag er orðið viðurkennt að slíkt uppeldi fer meðal annars fram með þróttmiklu íþróttastarfi.
Selfosshöllin hefur m.a. hýst árshátíð sveitarfélagsins og kom þá berlega í ljós hversu stórkostleg höllin er til allra nota. Hljómburður til tónleikahalds er magnaður í húsinu auk þess sem auðvelt er að halda uppi samræðum þó meira en þúsund manns séu þar saman komnir. Styrkleikarnir voru jafnframt haldnir með Selfosshöllina sem miðstöð og heppnaðist frábærlega.
Einna helst er það tvennt sem þetta íþróttamannvirki hefur umfram önnur sambærileg sem byggð hafa verið hérlendis.
Í fyrsta lagi er það sú frábæra aðstaða sem þarna er fyrir frjálsar íþróttir og hægt er að aðskilja með skýrum hætti frá æfingum á gervigrasinu. Í öðru lagi er það hljóðvistin í húsinu, en þjálfarar sem koma í húsið hafa sérstakt orð á því hve mikla þýðingu hún hefur á æfingum.
Bygging mannvirkis á borð við þetta er ekki einfalt verk og það er hægt að þakka fjölmörgum fyrir að Selfosshöllin skuli nú vera risin. Íbúar, bæði gengnir og þeim sem nú lifa, hafa með dugnaði og eljusemi byggt upp þá íþróttamenningu sem verðskuldar Selfosshöllina.
Bæjarstjórn sýndi áræðni og tók af skarið um byggingu hússins.
Formaður eigna- og veitunefndar, Tómas Ellert Tómasson, gegndi mikilvægu hlutverki í að hleypa verkefninu af stokkunum en samstaða meirihluta bæjarstjórnar um málið skipti hinsvegar sköpum í að Selfosshöllin gæti orðið að veruleika.
Það voru Alark arkitektar sem sáu um hönnun hússins.
Þeim var reyndar ekki aðeins falið að hanna þetta glæsilega hús, sem gert er ráð fyrir að verði tvöfalt stærra og rúmi fótboltavöll í fullri stærð þegar yfir lýkur. Arkitektunum var einnig falið að gera drög að glæsilegri íþróttamiðstöð framtíðarinnar. Þeirri íþróttamiðstöð er ætlað að tengja saman Selfosshöllina og nýja glæsilega aðstöðu fyrir aðrar íþróttir, s.s. fullkomna handboltahöll og fimleikahöll en einnig aðstöð fyrir deildir UMF Selfoss. Allt verður þetta tengt saman í eina glæsilega íþróttamiðstöð með sameiginlegri aðkomu.
Vonandi sjáum við þann draum verða að veruleika á næstu árum. Verkís vann að fullnaðarhönnun og lagði sérstaka áherslu á hljóðhönnun sem skilað hefur sér í þeirri hljóðvist sem allir geta nú verið sammála um að er bæði mjög vel heppnuð og ákaflega mikilvæg.
Framkvæmd verksins fyrir sveitarfélagið var í höndum þriggja aðalverktaka.
Ístak sá um bygginguna sjálfa, Þjótandi sá um jarðvinnu og Metatron um frágang innanhúss.
Það er full ástæða til að þakka mannvirkja- og umhverfissviði sveitarfélagsins fyrir farsæla framkvæmd.
Það tók oft verulega á í miðju Covid að láta hlutina ganga eftir áætlun. Að öðrum ólöstuðum skal nefna Atla Marel Vokes, sviðsstjóra, Sigurð Ólafsson deildarstjóra framkvæmda- og tæknideildar Árborgar, Gísla Tryggvason hjá framkvæmd- og tæknideild og Þórð Ásmundsson byggingarstjóra verksins. Þessir menn gættu sannarlega hagsmuna sveitarfélagsins eins og væru þeirra eigin.
Íbúum öllum og alveg sérstaklega UMF Selfoss er óskað til hamingju með Selfosshöllina