„Skilaðu þakklæti til starfsfólks sveitarfélagsins!“
Í þriðju tilraun tókst það, Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi varð loksins að veruleika sl. verslunarmannahelgi. Þessi vinsæla fjölskylduhátíð, sem fagnar 30 ára afmæli á þessu ári, hefur í gegnum árin vakið mikla athygli.
Þeir fjölmörgu sem mótin sækja hafa verið öðrum til fyrirmyndar hvað framkomu varðar, jafnt í keppni sem leik. Þar ríkir hinn sanni ungmennafélagsandi.
Unglingalandsmótið er liður í því að beina kastljósinu að góðum og heilbrigðum lífsstíl þar sem áhersla er lögð á samveru fjölskyldunnar í vímulausu umhverfi. Mótið hér á Selfossi tókst með eindæmum vel, veðrið lék við okkur og bros var á hverju andliti. Mikil ánægja var með íþróttasvæði okkar og alla aðstöðu. Um stuttan veg var að fara á milli keppnisgreina sem einfaldaði og létti keppendum og foreldrum lífið. Margar nýjar greinar slógu í gegn og það var í raun einstök upplifun og ánægja að sjá íþróttasvæðið okkar iða af lífi þessa helgi.
Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi er mikil lyftistöng fyrir samfélagið okkar, rétt eins og öll íþróttamót og bæjarhátíðir. Fátt kynnir sveitarfélagið betur en heimsókn 1200 unglinga og fjölskyldna þeirra. Hvar sem ég fór var fólk að hrósa og þakka fyrir aðstöðuna eða mótið sjálft. Flestir luku svo samtalinu á þann veg að biðja fyrir kveðju og þakkir til starfsfólks sveitarfélagsins sem svo sannarlega brást hratt og vel við erfiðum aðstæðum í aðdraganda mótsins með eintómum lausnum og jákvæðni.
Ég vil því hér koma til skila þessum kveðjum og þökkum til starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar frá mótshaldara, keppendum, foreldrum og mér - án framlags ykkar og eljusemi hefði þetta ekki verið hægt!
Fjóla St Kristinsdóttir
Bæjarstjóri Árborgar