Skólasetning skólaárið 2024-2025
Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir fimmtudaginn 22. ágúst 2024 sem hér segir:
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Skólasetning fer fram í húsnæði skólans á Stokkseyri. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara.
- Kl. 09:00 Nemendur í 2. - 6. bekk, f. 2017 - 2013
- Kl. 10:00 Nemendur í 7. - 10. bekk, f. 2012 - 2009
- Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2018) verða boðaðir til viðtals með umsjónarkennara
Stekkjaskóli
Skólasetning fer framí hátíðarsal skólans. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara.
- Kl. 9:00 Nemendur í 1. - 3. bekk, f. 2018, 2017 og 2016
- Kl. 10:00 Nemendur í 4. - 7. bekk, f. 2015, 2014, 2013 og 2012
- Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2018) verða jafnframt boðaðir til viðtals með umsjónarkennara
Sunnulækjarskóli
Skólasetning fer fram í sal í íþróttahúsi. Eftir stutta samkomu í íþróttahúsi munu nemendur hitta umsjónarkennara.
- Kl. 09:00 Nemendur í 1. - 6. bekk, f. 2018 - 2013
- Kl. 10:00 Nemendur í 7. - 10. bekk, f. 2012 - 2009
- Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2018) verða boðaðir til viðtals með umsjónarkennara
Vallaskóli
Skólasetning fer fram íþróttahúsi Vallaskóla. Eftir stutta samkomu í íþróttahúsinu munu nemendur hitta umsjónarkennara.
- Kl. 09:00 Nemendur í 1. - 6. bekk, f. 2018 - 2013
- Kl. 10:00 Nemendur í 7. - 10. bekk, f. 2012 - 2009
- Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2018) verða boðaðir til viðtals með umsjónarkennara.
Skólastjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Stekkjaskóla,
Sunnulækjarskóla og Vallaskóla.