Skólastarf Stekkjaskóla hefst í Bifröst
Tafir hafa orðið á framkvæmdum á húsnæði og skólalóð Stekkjaskóla og því mun skólastarfið hefjast í frístundaheimilinu Bifröst við Vallaskóla.
Síðustu daga hafa
skólastjórnendur skipulagt skólastarf Stekkjaskóla miðað við kennslu í Bifröst
í góðu samstarfi/samráði við stjórnendur frístundar og Vallaskóla en þessi
breyting á fyrirhugaðri skólabyrjun sýnir vel góða samvinnu og lausnamiðaða hugsun
í skólasamfélaginu.
Í morgun, fimmtudaginn 5. ágúst, funduðu stjórnendur Stekkjaskóla með starfsfólki sínu um þá möguleika sem eru til staðar er varða fyrirkomulag skólastarfsins fyrstu vikurnar. Ýmsar góðar hugmyndir komu fram og eru starfsmenn jákvæðir gagnvart þessu óvænta verkefni. Á skipulagsdögum nú í ágúst munu stjórnendur ásamt starfsfólki skólans fullmóta skipulagið. Í kjölfar starfsmannafundar sendu skólastjórnendur upplýsingapóst til foreldra en fljótlega verður þeim einnig boðið upp á upplýsinga- og samstarfsfund með umsjónarkennurum og skólastjórnendum. Þegar hafa verið lögð drög að styttri vettvangsferðum og fjölbreyttum útiverkefnum enda er veðurfar í ágúst og september oft ákjósanlegt til útikennslu.
Skólasetning Stekkjaskóla verður þriðjudaginn 24. ágúst nk. sem verður auglýst nánar síðar. Nú í haust hefja um 120 nemendur í 1.-4. bekk nám í skólanum og þrátt fyrir þetta óvænta verkefni í byrjun skólaársins ætlar hinn öflugi starfsmannahópur, í góðu samstarfi við foreldra, að leggja sig fram um að taka vel á móti nemendum með gleði og jákvæðni að leiðarljósi. Jákvæð umræða um nýjan grunnskóla á Selfossi er mikilvægt veganesti fyrir verðandi nemendur og allt skólasamfélagið.