Skrifað undir samning vegna viðbyggingar Jötunheima og dælustöð
Tindhagur ehf. skrifaði undir samning við sveitarfélagið vegna tveggja verkefna.
Verkefnin sem um ræðir eru annarsvegar viðbygging leikskólans Jötunheima og hinsvegar dælustöð og geymir Vatnsveitu Árborgar.
Viðbygging leikskólans felur í sér byggingu viðbyggingar við Leikskólann Jötunheima, breytingum á eldri hluta hússins ásamt byggingu nýrrar vagnageymslu. Nýbygging er uppsteypt einangruð að utan klædd með loftræstum klæðningum. Helstu breytingar á eldra húsnæði eru að breyta á núverandi kaffistofu, stækka vinnustofu kennara og fatarýi starfsmanna, einnig á að taka geymslur inn af fataklefum barna og breyta þeim í fataklefa fyrir starfsmenn. Vagnageymsla er úr timbri óeinangruð með loftræstri klæðningu. Verktaki mun sjá um fullnaðarfrágang viðbyggingar, breytingar á eldra húsnæði og vagnageymslu ásamt fullnaðarfrágangi lóðar.
Verkefnið dælustöð og geymir Vatnsveitu Árbograr tekur til uppbyggingar dælustöðvar vatnsveitna í Árborg ásamt vatnsgeymi samkvæmt skilmálum útboðsgagna. Byggingarnar eru uppsteyptar með holplötum í þaki í megindráttum. Dælustöðin er tvær hæðir, 1. hæð og kjallari. Birt flatarmál byggingarinnar er 220,1m². Í byggingunni verður dælubúnaður til að dæla vatni, búnaður því tengdur og salerni. Vatnsgeymirinn er rúmlega 2.000m3 geymir með sambyggðu lokahúsi fyrir lagnatengingar við geyminn. Vatnsgeymirinn er um 675m².
Á ljósmynd frá undirritun má sjá frá vinstri: Svanbjörg Vilbergsdóttir – verkefnastjóri MUS, Hákon Garðar Þorvaldsson – veitustjóri Selfossveitna, Bragi Bjarnason – bæjarstjóri, Sigurður Rúnar Ingason – Eigandi Tindhagur ehf, Árni Magnússon – Eigandi Tindhagur ehf, Atli Marel Vokes -sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs, Haraldur Sigurðsson – verkefnstjóri á MUS

