Slöbbum saman frá 15. jan til 15. feb 2022
Slöbbum saman er verkefni sem Landlæknisembættið, ÍSÍ, UMFÍ og Sýn fara nú af stað með og miðar að því að fá fólk til að hreyfa sig.
Fátt skilar jafn góðum árangri fyrir líkama og sál og hreyfing og létt hreyfing er eitthvað sem við flest getum gert.
Við hvetjum landann til að fara út og labba en þar sem færðin vinnur ekki alltaf með okkur á þessum árstíma höfum við húmorinn með og ætlum því að SLABBA saman, labba í slabbi.
Nú er um að gera að ræsa vinahópinn, fjölskylduna, saumaklúbbinn, vinnufélagana og Zoom-hópinn út í rokrassgatið, slabba saman og efla líkama og sál
HVERNIG TEK ÉG ÞÁTT?
Fáum ALLA landsmenn með til að slabba saman og sigurvegarinn er í raun sá eða sú sem bætir sig mest í hreyfingu. Hoppaðu í stígvélin, reimdu á þig skóna, settu hnakkinn á og slabbaðu af stað. Ekki gleyma snjallsímanum/úrinu og fylgstu með árangrinum. Árangursmæling eykur gleðina :)
Þín upplifun er hvatning fyrir aðra og því væri gaman að þú deildir gleðinni með okkur.
Ef þú vilt eiga mögueika á skemmtilegum glaðningi þá getur þú skráð þig á visir.is/slobbumsaman eða merktu mynd með þér úr göngunni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #slobbumsaman
Einu sinni í viku er dregið úr skráningum og merktum myndum og viðkomandi fær skemmtilegan glaðning.
Þetta er ekki um það hver hreyfir sig mest heldur er verið að hvetja ykkur öll til að bæta við ykkur hreyfingu. Hvort sem þið hafið verið á fullu eða ekki gert neitt þá er hreyfing grunnurinn að andlegri vellíðan.
Aukum gleði í samfélaginu og SLÖBBUM okkur í átt að meiri gleði.