Söfnun jólatrjáa í Sveitarfélaginu Árborg lau. 9. janúar 2021
Laugardaginn 9.janúar 2021 frá kl. 10:00 verða jólatrén hirt upp í Sveitarfélaginu Árborg. Íbúar geta þá sett jólatrén sín út á gangstétt eða lóðamörk og verða þau þá fjarlægð.
Mikilvægt er að trén séu sýnileg frá götu þannig að auðvelt sé að fjarlægja þau. Farið verður af stað í söfnunina um kl. 10:00 laugardaginn 9.janúar og mikilvægt er að trén séu komin að gangstétt/lóðarmörkum þá. Körfuknattleiksfélag Selfoss sér um jólatrjáasöfnunina en ekki verður um frekari safnanir að ræða á jólatrjám í sveitarfélaginu þetta árið en einstaklingar geta komið jólatrjánum sínum niður á gámasvæði Sveitarfélagsins Árborgar í Víkurheiði á opnunartíma.
Íbúar eru einnig hvattir til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði.
Sveitarfélagið Árborg