Sprotasjóður styrkir tvö framsækin skólaverkefni í Árborg
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri og Stekkjaskóli hafa fengið vilyrði fyrir styrkjum frá Sprotasjóði í framsækin og metnaðarfull þróunarverkefni á skólaárinu 2021-2022.
Verkefni Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri heitir BES lítur sér nær og snýr að samvinnu við nærsamfélagið á breiðum grundvelli. Markmið verkefnis er að efla samskipti, samhyggð og samvinnu meðal nemenda, kennara, foreldra og annarra í þorpunum þar sem skólinn starfar. Einnig að efla og styrkja samstarf við nærsamfélagið. Innan nærsamfélagsins eru auk skólans, fyrirtæki, listamenn, eldri borgarar, stofnanir og allir þeir sem búa og/eða vinna í nærsamfélaginu og einnig aðrir sem hafa á áhuga á nærsamfélagi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Áætlaður afrakstur verkefnis er að samskipti og samvinna skólans í nærsamfélaginu verði sjálfbær. Að nemendur þekki nærumhverfi sitt og hvað það hefur upp á að bjóða og að nærumhverfið þekki skólann og starfsemi hans.
Framkvæmd verkefnisins samanstendur af 6 þáttum sem eru:
- Fundur með nærsamfélaginu, fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og íbúum í nágrenni skólans.
- Fundur með starfsfólki Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Fundur með nemendum Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri
- Vinna með nærsamfélaginu að því að ná þeim markmiðum sem sett verða á þessum fundum og í kjölfar þeirra.
- Fræðsla um sögu þorpanna og samþætting sögunnar og skólastarfsins með þátttöku þeirra aðila sem að verkefninu koma.
- Leita upplýsinga hjá öðrum skólum um reynslu þeirra af svipuðum verkefnum.
Barnaskólinn mun gera skýrslu um verkefnið og skila henni til Sprotasjóðs auk þess sem fréttir af verkefninu verða til staðar á heimasíðu og Facebook síðu skólans. Einnig verður fréttaflutningur í staðarblöðum og fréttamiðlum.
Verkefni Stekkjaskóla heitir; Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla. Eins og nafnið gefur til kynna verður unnið með hugmyndafræði lærdómssamfélagsins (e. professional learning community) frá stofnun Stekkjaskóla haustið 2021 með því að byggja upp traust og samstarfshugsun frá upphafi. Mótuð verður framtíðarsýn skólans með starfsfólki, nemendum, foreldrum, nærsamfélaginu og skólaþjónustu Árborgar og stuðlað þannig að lýðræði og jafnrétti í skólasamfélaginu. Jafnframt verður leitað til ýmissa sérfræðinga innan og utan Árborgar.
Í þessu lærdómssamfélagsverkefni verður lögð áhersla á eftirfarandi grunnþætti:
- Áherslur og gildi skólans (einkunnarorð)
- Teymisvinna og teymiskennsla (Lýðræði - samvinna – samábyrgð)
Áherslur og stefna skólans verður mótuð ásamt einkunnarorðum hans. Jafnframt verður unnið með teymisvinnu og teymiskennslu sem mun verða aðalsmerki skólans. Verkefninu verður stýrt af teymi sem er samsett af stjórnendum Stekkjaskóla, fulltrúum starfsmanna, auk Ingvars Sigurgeirssonar prófessors og verkefnisstjóra.
Skólastjórnendur og fulltrúar frá Stekkjaskóla, munu kynna niðurstöður og afrakstur fyrir skólasamfélaginu í lok næsta skólaárs með eftirfarandi hætti:
- Uppskeruhátíð að vori. Kynningar á meginþáttum verkefnisins með þátttöku skólasamfélagsins.
- Helstu niðurstöður settar á heimasíðu skólans sem og lokaskýrsla.
- Verkefnið og niðurstöður kynntar í staðarblöðum sveitarfélagsins því jákvæð umfjöllun styrkir og eflir skólasamfélagið.
- Með greinaskrifum í fagtímarit.
- Kynning á Skóladegi Árborgar, mars 2023.
Bestu hamingjuóskir til stjórnenda og starfsfólks Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri og Stekkjaskóla.