Sprotasjóður styrkir tvö verkefni í skólum Árborgar
Verkefnin Eflum tengsl heimila og skóla og Vörðum leiðina hlutu samtals styrki að upphæð 6.400.000 úr Sprotasjóði.
Verkefnið Eflum tengsl heimila og skóla fékk styrk að upphæð 1.400.000 úr Sprotasjóði.
Markmið þessa þróunarverkefnis er að bjóða grunnskólanemum með fjölmenningarlegan bakgrunn í Sveitarfélaginu Árborg og foreldrum þeirra á íslenskunámskeið þar sem helstu hugtök verða kynnt og unnið að eflingu skólaorðaforða.
Fjölskyldusvið Árborgar, grunnskólar sveitarfélagsins og Fjölbrautaskóli Suðurlands munu taka þátt í verkefninu. Í haust verða haldnir undirbúningsfundir með samstarfsaðilum vegna skipulagningar á námskeiðinu og þar verður einnig unnið að gerð náms- og kennsluefnis. Sjálf námskeiðið verður haldið á haustönn 2022. Áætlaðir kennslustundafjöldi er 15 tímar, 90 mín. í senn, 1x í viku á kvöldin. Verkefnið verður kynnt á ráðstefnum, fræðslufundum og í fjölmiðlum.
Í þróunarverkefninu veita þær Anna Linda Sigurðardóttir, verkefnastjóri, Aneta Figlarska, kennsluráðgjafi í fjölmenningu og Anna Katarzyna Woźniczka, verkefnastjóri í málefnum flóttamanna, faglega ráðgjöf og halda utan um samstarfsfundi með tengiliðum skólanna.
Verkefnið Vörðum leiðina fær 5 milljón króna styrk úr Sprotasjóði.
Um er að ræða samstarfsverkefni þriggja sveitarfélaga, þ.e. Árborgar, Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar.
Markmið verkefnisins er að móta vegvísi fyrir kennara um það hvernig best sé að vinna með niðurstöður úr Stöðumatinu við gerð kennsluáætlana og við skipulag ÍSAT kennslu og annars námslegs stuðnings við nemendur af erlendum uppruna. Einnig verður unnið að leiðbeinandi grunni að kennsluáætlunum í öðrum námsgreinum fyrir yngsta stig, miðstig og unglingastig/framhaldsskóla.
Áhersla verður lögð á markvissa orðaforðakennslu í þremur orðaforðaþrepum, þ.e. grunnorðaforða, millilagsorðaforða og sértæks orðaforða námsgreina. Unnið verður að gerð orðaforðanámsskráa sem taka annars vegar mið af aldri nemenda og hins vegar hæfni í íslensku skv. nýjum ÍSAT hæfnirömmum í aðalnámsskrá grunnskóla.
Loks verður lögð áhersla á að vinna með fyrri þekkingu nemenda, reynslu, hæfni og styrkleika og fleira sem fram kemur í niðurstöðum Stöðumatsins.
Í Sveitarfélaginu Árborg taka Sunnulækjarskóli, Vallaskóli og Fjölbrautaskóli Suðurlands þátt í verkefninu. Stýrihópur Stöðumatsins skipuleggur fagfundi sem fara fram á haustönn 2022.
Tímalína verður gerð og aðgerðaáætlun svo hægt verði að tryggja áætlaðan framgang verkefnisins. Samstarfsaðilar fá þær áætlanir til kynningar svo þeir geti gert athugasemdir ef á þarf að halda áður en vinnan hefst.
Fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar í stýrihópnum eru þau Aneta Figlarska, kennsluráðgjafi í fjölmenningu, Hrund Harðardóttir, kennsluráðgjafi, og Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.