Stekkjaskóli | Nýtt glæsilegt húsnæði
Það var mikill gleðidagur hjá nemendum og starfsmönnum Stekkjaskóla miðvikudaginn 23. mars, þegar fyrsti skóladagurinn var í nýju glæsilegu húsnæði skólans að Heiðarstekk 10 á Selfossi.
Skólinn er fallegur og vel skipulagður og hafa fyrstu skóladagarnir gengið mjög vel
Nemendum og starfsmönnum líður vel á nýjum stað þar sem heimsvæði nemenda eru virkilega falleg og vel útbúin. List- og verkgreinastofurnar eru mjög flottar og er gleðilegt fyrir alla að fá nú loks góða aðstöðu fyrir listir- og handverk.
Fyrsta skóladaginn komu gestir frá Fjölskyldusviði Árborgar í heimsókn og færðu starfsfólki og nemendum fallegan blómvönd í tilefni dagsins. Þar voru á ferðinni Heiða Ösp sviðsstjóri, Margrét Björk deildarstjóri skólaþjónustu, Daði fjármálasérfræðingur og Ólafur Rafnar.
Skólabyggingin
Skólann hannaði arkitektastofan Hornsteinar og ÞG Verk sá um byggingingarframkvæmdir. Þessi fyrsti áfangi sem er á tveimur hæðum er 4.150 fermetrar. Byrjað er að byggja annan áfangi skólans sem verður um 4.000 fermetrar og er áætlað að taka hann í notkun haustið 2024.
Skólinn er hannaður sem teymiskennsluskóli þar sem hver árgangur er með svæði sem afmarkast af stóru vinnusvæði, lítilli kennslustofu og tveimur hópaherbergjum. Fullkomið eldhús er í mötuneyti skólans sem sem á að geta annað 500 nemenda skóla ásamt starfsfólki. Í þessum fyrsta áfanga er jafnframt skrifstofuálma, list- og verkgreinastofur, frístundarými og kaffistofa starfsmanna.
Fyrst um sinn mun skólinn nýta frístundarýmin en þegar annar áfangi verður tilbúinn flytur frístundin Bjarkarból inn í skólahúsnæðið. Hún verður þangað til í færanlegu kennslustofunum á skólalóðinni. Í þessum áfanga er einnig hátíðarsalur sem verður tilbúinn í sumar.
Í 2. áfanga skólans, sem verður um 4.000 fermetrar, verða heimasvæði fyrir 6. -10. bekk, ásamt náttúrufræðistofu, myndmenntastofu, bókasafni, félagsaðstöðu nemenda, hreyfirými o.fl.
Nemendur og starfsmenn horfa glaðir fram á veginn og ætla að byggja upp gott og farsælt skólastarf í fallegu og notarlegu umhverfi.
Við óskum starfsmönnum og nemendum til hamingju með Stekkjaskóla.