Stöðuskýrsla fjölskyldusviðs Árborgar er komin út
Rúm tvö ár eru liðin frá stofnun fjölskyldusviðs Árborgar og af því tilefni var ákveðið að taka stöðuna á umbótavinnunni og kynna í sérstakri stöðuskýrslu.
Í stöðuskýrslunni er m.a. fjallað um umbóta- og þróunarstarf frá stofnun fagsviðsins 1. mars 2019.
Fjölskyldusvið Árborgar er stórt og ber ábyrgð á mörgum mikilvægum málaflokkum. Skýrslan tekur til skóla og annarra deilda fjölskyldusviðs, þróunar verkferla, þverfaglegrar þjónustu og nýlegra umbótaverkefna.
Stöðuskýrslan var unnin af stjórnendum og starfsfólki og samhljómur er um að sérlega mikil gróska hafi verið á fjölskyldusviði frá sumri 2020. Á fagsviðinu starfa margar fagstéttir, sem gefur slagkraft í þróun þverfaglegrar þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri.
Áherslur hafa verið lagðar út frá hugmyndafræði forvarna og snemmtæks stuðnings sem er meðal annars í góðu samræmi við nýsamþykkt lög um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna.