Styttist í opnun sundlaugar Stokkseyrar
Framkvæmdum við sundlaug Stokkseyrar verður brátt lokið eftir umfangsmiklar viðgerðir og viðhald.
Framkvæmdir í og við sundlaug Stokkseyrar eru enn í fullum gangi
Búið er að steypa fleyta í kringum sjálfa laugina og í framhaldinu verður útisvæðið hellulagt. Einnig var unnið að viðgerðum á heitupottum á útisvæði og er ráðgert að mála þá fljótlega.
Að lokum er stefnt á að hefja lokavinnu við sjálfa sundlaugina með lagningu á nýjum dúk. Sú framkvæmd er líkt og önnur útiverk sem hafa verið unnin á svæðinu háð veðri og lítur spáin ágætlega út.
Stefnt er að opna sundlaug Stokkseyrar seinni hluta júní. Nánar um opnun verður auglýst síðar.