Sumar á Selfossi í 30 ár
Í ár fagnar bæjarhátíðin Sumar á Selfossi þeim merka áfanga að vera haldin í 30. sinn. Dagskrá hefst fimmtudaginn 6. ágúst og stendur hátíðin fram á sunnudag 9. ágúst.
Sumar á Selfossi dagana 6. - 9. ágúst 2026
Fjölbreytt dagskrá verður í gangi sem nær hámarki með sléttusöng og balli í Sigtúnsgarðinum á laugardagskvöldinu.
Stór hluti af Sumar á Selfossi eru hverfaskreytingarnar en þær hafa aukist jafnt og þétt sl. ár enda til mikils að vinna fyrir best skreyttu götuna og hefur heyrst að margar götur haldi reglulega fundi frá því árinu áður til að undirbúa skreytingarnar. Hverfalitirnir eru eins hvert ár.

Dagskrá má finna á viðburðadagatali sveitarfélagsins og í bæklingi hátíðarinnar hér.

