Sumarleikur fjölskyldunnar í Árborg - finna póstkassann
Sveitarfélagið Árborg í samstarfi við Heilsueflandi samfélag hefur sett á laggirnar nýtt fjölskylduverkefni sumarið 2021. Um er að ræða útgáfu af ratleik þar sem gengið er á ákveðin stað og kvittað í gestabók sem um leið gefur möguleika á verðlaunum.
Um er að ræða sex staði í sveitarfélaginu þar sem búið er að setja sérstaka póstkassa sem þarf að ganga að og merkja í gestabókina. Staðirnir eru við Sængurkonustein, Hellisskóg, Hallskot og fuglafriðlandið, Ingólfsfjall, Fjaran við Knarrarósvita og Silfurbergið en nánari skýringar má finna hér að neðan.
Markmið verkefnisins er að hvetja fjölskyldur til útivistar í fallegu náttúrunni okkar, kynnist nærumhverfi sínu betur, uppgötva staði sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða, skapa samverutíma saman og eignast skemmtilegar minningar.
Verkefnið er sett upp af Díönu Gestsdóttur, lýðheilsufulltrúa hjá Sveitarfélaginu Árborg en hún starfar að verkefnum tengd heilsueflandi samfélagi fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu.
Fjöldi fyrirtækja á svæðinu hefur gefið útdráttarverðlaun fyrir þá sem ná að merkja við fjóra staði eða fleiri í sumar en verkefnið verður í gangi fram til loka ágúst og auðvitað má fara oft á hvern stað þó það telji bara einu sinni :)
Fyrirtækin sem taka þátt og er þeim þakkað kærlega fyrir að taka þátt í þessu jákvæða verkefni:
- Lindex sem opnar á Selfossi 7. ágúst 5x5000kr gjafabréf
- Stúdíó Sport Selfossi gjafabréf
- Ísbúðinni Huppu gefur 4 gjafabréf
- Kayak ferðir Stokkseyri gefur gjafabréf fyrir fjölskyldnau á Kayak
- ÍSEY skyrbar gefur 10 gjafabréf
- Vor veitingar gefur gjafabréf
Nánar um hvern stað og staðsetningu póstkassanna.
Leið 1: Sængurkonusteinn undir Ingólfsfjalli
Undir Ingólfsfjalli er fjöldinn allur af stórum steinum sem hrunið hafa úr Ingólfsfjalli. Undir einum þeirra er skúti sem er eitt af stærstu björgunum og nefnist hann Sængurkonusteinn.
Sagan segir að tilkoma nafnsins sé komin á eftirfarandi hátt: kvöld eitt hafi förukona komið að bænum Fjalli sem stóð austarlega undir suðurhlíð fjallsins sem var hið mesta höfuðból með 30 hurðir á járnum. Þar á Ingólfur fyrst að hafa byggt. En þegar sagan gerist bjuggu þar auðug hjón en hörð og nísk. Förukonan kom þetta ágæta kvöld og bað gistingar, auðséð var á henni að hún myndi innan skamms ala barn. Vildi hjónin alls ekkert með hana hafa og úthýstu henni. Það helliringdi úti sama kvöld og ráfaði konan vestur með fjallinu en komst ekki lengra en að steininum og lét fyrir berast í skútanum. Þar ól hún barn sitt um nóttina og herma munnmæli að huldukona hafi hjálpað henni. Bæði hún og barnið fundust lifandi um morguninn, var þeim hjúkrað og hresstust þau við. Þessa sömu nótt féll skriða á bæinn Fjalli og hefur síðan ekki sést eftir af honum nema lítið eitt af túnjaðrinum sem enn í dag heitir Fjallstún og sjást litlar leyfar af byggingu þar.
Beygt inn á Biskupstungnabraut og keyrt aðeins áleiðis, framhjá einum vegamótum, svo kemur smá plan á vinstri hendi þar sem nýlegar tröppur er og hlið, þar er lagt, gengið yfir tröppurnar og beygt til vinstri, fljótlega sést glitta í Blákoll og Sængurkonustein
Póstkassinn er staðsettur við steininn.
Leið 2: Hellisskógur
Frá árinu 1986 hefur Hellisskógur verið aðal vinnusvæði skógræktarfélags Selfoss. Hefur skógræktin, sjálfboðaliðar og sveitarfélagið unnið mikið og gott verk. Svæðið var afhent skógræktarfélagi Selfoss með samningi við Selfossbæ þann 1.október 1985. Þrátt fyrir engan skóg var svæðið strax nefnt Hellisskógur, var landið þá mjög illa farið eftir langvarandi ofbeit sauðfjár og hrossa. Mýrlendið var víða gróðurlítið, mikil drullusvað og í holtunum voru stór rofaborð.
Flestir kannast við hellirinn í Hellisskógi, en hann er talinn hafa myndast í lok síðasta jökulskeiðsþegar brim svarf klettaborgina til en víða má sjá merki um ágang sjávar. Sögur segja að reimt sé í hellinum, svo fólk skal ekki láta sér bregða þótt óvenjuleg atvik eigi sér stað meðan það heimsækir hellirinn. Mögulegt er að næmir göngumenn geti átt von á því að að sjá hér ungan mann með langan trefil á sveimi. Er þar á ferð maður sem hengdi sig í hellinum vegna ástarsorgar. Hellirinn var lengi vel notaður sem fjárhús.
Í skóginum hefur verið plantað um 220.000 plöntum af 51 tegund og má finna þær allar í trjásafni skógarins.
Við mælum með að nesta sig upp, taka með sér teppi og arka af stað inn í skóginn þar sem finna má nokkrar skemmtilegar gönguleiðir. Hér er hægt að eyða góðum tíma saman, upplifa allskonar skemmtilegt saman, m.a. kasta steinum í ölfusá, athuga hvort tröllið sé undir brúnni og jafnvel rekast á nokkrar kanínur.
Póstkassinn er staðsettur í litlum radíus í kringum hellirinn
Leið 3: Hallskot og Friðland í Flóa
Hallskot er stórbrotið útivistarsvæði norðan við Eyrarbakka í átt að Fuglafriðlandinu í Flóa. Hallskot er í umsjá Skógræktarfélags Eyrarbakka.
Hallskot býður upp á fjölmarga möguleika til útivistar og hreyfings. Mjög skjólsælt svæði þar sem finna má bekki og borð. Frábær hugmynd að taka með sér teppi og nesti, setjast niður og njóta þessa fallega staðar saman.
Eftir smá skoðun í Hallskoti mælum við með því að fólk leggi leið sína að fuglafriðlandinu í flóa sem er þarna aðeins lengra.
Leið 4: Ingólfsfjall
Ingólfsfjall í Ölfusi er 551 m (Inghóll) á hæð yfir sjávarmáli. Fjallið er hlíðarbratt móbergsfjall með hraunlögum inn á milli, einkum að neðan og í kolli. Fjallið varð til um miðja ísöld og var sjávarhöfði í lok ísaldar þegar sjávarstaða var sem hæst. Fjallið er kennt við landnámsmanninn Ingólf Arnarson. Upp á fjallinu er grágrýtishæð sem heitir Inghóll og segja munnmæli að þar sé Ingólfur heygður.
Það er hömrum girt að mestu nema að norðanverðu, þar eru aflíðandi brekkur upp að fara. Að ofan er fjallið flatt. Það er um 5 km frá vestri til austurs en um 7 km frá norðri til suðurs. Fjölmargar leiðir eru færar upp á fjallið þó hin hefðbundna gönguleið austan Þórustaðanámu sé lang mest gengin.
Á góðum sumardegi er fátt betra en reima á sig skóna og skunda upp að vörðu (400 m) þar sem gestabók Ferðafélags Árnesinga er staðsett. Gildir einu hvort þú ætlir þér að vera 20 mínútur á leiðinni upp eða tvær klukkustundir. Þegar upp á topp er komið mælum við að sjálfsögðu með toppamynd, njóta fallega útsýnisins, góðri nestispásu og að sjálfsögðu kvitta í stílabókina góðu sem staðsett er hjá gestabók Ferðafélags Árnesinga.
Upphafsstaður: Þórustaðanáma
Leið 5: Fjaran í Stokkseyri/Knarrarósviti
Knarrarósviti er 26,2 metra hár viti sem stendur við Knarrarós austan við Stokkseyri. Vitinn stendur á landi Baugsstaða og er svæðið kallað kampur. Vitinn er skýrður eftir ós sem er staðsettur fyrir framan hann sem kallaður er Knarrarós. Útsýnið úr vitanum er einstaklega mikið og fallegt.
Árið 1938 hófst vinna við að byggja upp Knarrarósvita og var hann tekinn í notkun ári síðar eða 31. ágúst 1939. Þjónaði vitinn gríðarlega miklu hlutverki fyrir sjávarútveginn á þessum tíma þar sem innsiglingar á þessu svæði voru mjög hættulegar. Mörg skip hafa farist á þessum slóðum. Vitinn er hæsta bygging á Suðurlandi.
Vitinn verður opinn fyrir almenning í sumar og mælum við með ferð upp á topp og njóta útsýnisins af honum.
Eftir heimsókn í vitan höldum við beint á leið út í fjöruna þar sem póstkassinn býður okkar, en að sjálfsögðu mælum við með að leika smá í fjörunni líka.
Leið 6: Silfurberg
Suður úr vesturhorni fjallsins skagar grár klettamúli Silfurberg sem er úr móbergi með ljósum holufyllingum sem aðallega eru geislasteinaútfellingar. Stundum nefnt öxlin á Ingólfsfjalli. Létt og skemmtileg ganga sem hentar allri fjölskyldunni.
Mælum með uppáhaldsnesti og góða skapinu.
Við viljum vekja athygli á því að lausaganga hunda er bönnum á þessu svæði og biðjum við ykkur því að hafa þá í bandi ef þeir verða svo heppnir að fá að skottast með.
Póstkassan er staðsettur á leiðinni.