Sveitarfélagið Árborg samþykkir að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5%
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum fim. 4. júní sl. að í fjárhagsáætlun 2027 verði almennar gjaldskrár hjá A-hluta ekki hækkaðar umfram 2,5% sem er verðbólguviðmið Seðlabanka Íslands.
Sveitarfélagið Árborg vill sýna ábyrgð og leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og létta undir með íbúum og fyrirtækjum í Árborg.
Bæjarráð skorar á ríkisvaldið og önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama með það að markmiði að opinberir aðilar gefi skýr skilaboð um að ná megi niður verðbólgu í landinu.


